Fotbolti.net
12.01.05 - 21:01
Magnús Már Einarsson

Mutu til Juventus (Staðfest)

Mutu til Juventus (Staðfest)
Canon
Rúmenski sóknarmaðurinn Adrian Mutu hefur gert fimm ára samning við Juventus en þessu greindi ítalska liðið frá í kvöld. Juventus hefur verið orðað við Mutu síðan hann var rekinn frá Chelsea og nú hefur ítalska liðið samið við hann. Þessi 26 ára gamli leikmaður var mikið í fréttunum í haust eftir að hann féll á lyfjaprófi en hann reyndist hafa notað kókaín.
Chelsea keypti Mutu á 16 milljónir punda frá Parma árið 2003 en kappinn fékk sjö mánaða bann hjá Fifa í haust. Því má hann ekki spila með Juventus fyrr en í fyrsta lagi í maí en hann verður orðinn löglegur í seinustu tveimur leikjum Juventus í Serie A.

Sjá einnig:
Mutu í fréttaleit
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.