12.02.10 - 14:23
Magnús Már Einarsson
Dusko Tosic til Portsmouth (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portsmouth hefur fengið varnarmanninn Dusko Tosic til liðs við sig en hann hefur gert samning við liðið út tímabilið.
Tosic, sem er 25 ára, yfirgaf Werder Bremen fyrr í mánuðinum og hann kemur frítt til Portsmouth.
Tosic leikur í stöðu vinstri bakvarðar og því er Hermann Hreiðarsson að fá meiri samkeppni um stöðu í liði Portsmouth.
Hermann hefur verið meiddur að undanförnu en hann gæti leikið að nýju með Portsmouth þegar að liðið mætir nágrönnum sínum í Southampton í enska bikarnum um helgina.
Tosic gæti einnig leikið þann leik ef að hann fær leikheimild í tæka tíð.

Heimild: Sky