12.02.10 - 15:03
Magnús Már Einarsson
Garðar Gunnlaugsson til Linz (Staðfest)

Mynd: Guðmundur Svansson

Mynd: Guðmundur Svansson
Garðar Bergmann Gunnlaugsson hefur skrifað undir samning við austurríska félagið LASK Linz. Samningurinn kveður á um að Garðar klárar tímabilið með LASK Linz og eftir það hefur liðið möguleika á að framlengja samninginn um tvö ár.
Garðar hefur æft með Linz að undanförnu en hann kemur frítt til félagsins eftir að hafa yfirgefið CSKA Sofia á síðasta ári.
,,Þetta er fínt tækifæri fyrir Garðar að sýna sig og sanna,\" sagði Halldór Birgir Bergþórsson umboðsmaður hjá Sportic við Fótbolta.net.
,,Hann var í erfiðri stöðu í Búlgaríu eftir að hafa lent í launadeilu við CSKA Sofia og gott fyrir hann að geta farið að einbeita sér að því að spila fótbolta.\"
Linz er í áttunda sæti af tíu liðum í austurrísku úrvalsdeildinni með átján stig.
Einungis eitt lið fellur úr deildinni er Austria Karnten sem er í neðsta sæti er með sjö stig og því er Linz langt frá fallsvæðinu.
Linz hefur ekki unnið leik síðan 23.september en liðið mætir toppliði Rapid Vín í kvöld í fyrsta leik eftir vetrarfrí.
Garðar verður væntanlega ekki með í þeim leik en hann ætti að geta leikið sinn fyrsta leik með Linz gegn Salzburg eftir rúma viku.