Fotbolti.net
12.02.10 - 16:12
Magnús Már Einarsson

Jón Kári Eldon í Hvöt (Staðfest)

Jón Kári Eldon í Hvöt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarsson

Hvöt, sem leikur í 2.deild, hefur fengið sóknarmanninn Jón Kára Eldon á láni frá KR.
Jón Kári er uppalinn hjá KR en hann hefur leikið æfingaleiki með Hvöt að undanförnu.

Á dögunum fór Jón Kári einnig til norska félagsins Flöy á reynslu en nú er ljóst að hann mun ekki fara þangað.

Jón Kári var valinn efnilegasti leikmaðurinn í annarri deildinni á síðustu leiktíð en hann lék þá með Hamar.

Þessi tvítugi sóknarmaður skoraði átta mörk í 21 leik með Hamarsmönnum í annarri deildinni síðastliðið sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.