Fotbolti.net
12.02.10 - 20:35
Magnús Már Einarsson

Sergio Canales til Real Madrid (Staðfest)

Canales í leik gegn Atletico Madrid á dögunum.

Canales í leik gegn Atletico Madrid á dögunum.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur keypt hinn unga og bráðefnilega Sergio Canales frá Racing Santander.
Þessi 18 ára gamli leikmaður mun ganga til liðs við Real Madrid í sumar en hann mun þá skrifa undir sex ára samning við félagið.

Canales hefur slegið í gegn með Racing Santander undanfarnar vikur eftir að hann náði að komast í byrjunarliðið.

Canales leikur framarlega á miðjunni en hann hefur skorað nokkur lagleg mörk í síðustu leikjum.

Arsenal, Chelsea, Manchester City og Barcelona voru einnig á eftir leikmanninum en hann ákvað að ganga til liðs við Real Madrid.

Ekki hefur verið greint frá því hvert kaupverðið er en ekki er ólíklegt að Canales verði lánaður aftur til Racing Santander á næsta tímabili.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.