Fotbolti.net
12.03.12 - 19:30
Magnús Már Einarsson

Phillip Cocu tekur við PSV Eindhoven (Staðfest)

Phillip Cocu tekur við PSV Eindhoven (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Phillip Cocu hefur verið ráðinn þjálfari PSV Eindhoven en hann tekur við liðinu af Fred Rutten sem var rekinn í dag.
Rutten tók við PSV í júlí 2009 eftir að hafa áður þjálfað Twente Enschede og Schalke 04.

Eftir 4-2 tap gegn Valencia í Evrópudeildinni síðastliðinn fimmtudag og tap gegn NAC Breda í gær ákváðu forráðamenn PSV að láta Rutten taka pokann sinn.

Cocu hefur nú tekið við en hann vann fjóra titla með PSV á sínum tíma. Cocu spilaði einnig með Barcelona í sex ár og þá lék hann 101 leik með hollenska landsliðinu á sínum tíma.

PSV er sem stendur í fjórða sæti í hollensku deildinni, einungis fjórum stigum á eftir toppliði AZ Alkmaar.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.