Fotbolti.net
12.03.12 - 20:30
Daníel Freyr Jónsson

Brett Holman til Aston Villa (Staðfest)

Brett Holman.

Brett Holman.

Canon

Mynd: Getty Images

Ástralski landsliðsmaðurinn Brett Holman hefur samþykkt samningstilboð Aston Villa og mun ganga í raðir félagsins í sumar. Hann kemur á frjálsri sölu frá hollenska liðinu AZ Alkmaar.
Holman á 53 landsleiki að baki og er Alex McLeish ánægður með að tryggja sér svo reynslumikinn leikmann.



,,Brett er mjög snjall leikmaður, frábær liðsmaður og er þekktur fyrir að hætta aldrei. Hann er traustur kantmaður," sagði McLeish.



,,Hann er reynslumikill og hefur spilað í Meistaradeildinni og í Evrópudeildinni síðustu ár. Hann mun koma með mikla reynslu í Villa liðið."



Ástralinn, sem er 27 ára, á hátt í 300 deildarleiki að baki á ferlinum og hefur spilað í Hollandi frá árinu 2002, en hefur verið í herbúðum AZ Alkmaar síðustu fjögur ár.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.