12.04.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Jeppe Opstrup í Huginn (Staðfest)

Jeppe í leik með Huginn árið 2007.

Mynd: Agl.is/Gunnar Gunnarsson

Jeppe í leik með Huginn árið 2007.

Mynd: Agl.is/Gunnar Gunnarsson
Danski framherjinn Jeppe Opstrup er genginn að nýju í raðir Huginn eftir að hafa leikið með Hetti á síðustu leiktíð.
Jeppe lék með Huginn við góðan orðstýr árin 2006 og 2007 en á fyrra árinu skoraði hann tíu mörk í annarri deildinni.
Á síðara árinu settu meiðsli strik í reikninginn en þrátt fyrir það skoraði Jeppe átta mörk í níu leikjum í þriðju deildinni.
Í fyrra skoraði hann síðan fimm mörk í þrettán leikjum með Hetti í annarri deildinni og VISA-bikarnum en hann missti af hluta tímabilsins vegna meiðsla.
Jeppe hefur einnig verið meiddur í vetur en þessi 24 ára gamli leikmaður er allur að koma til og vonast menn hjá Huginn til að hann verði klár í slaginn fyrir fyrsta leik í sumar.

Heimild: Heimasíða Huginn