Fotbolti.net
12.04.12 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Max Touloute í Tindastól (Staðfest)

Max Touloute í Tindastól (Staðfest)
Canon

Mynd: Valgeir Kárason

Tindastóll hefur samið við framherjann Max Touloute til liðs við sig en hann mun leika með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Max er fæddur árið 1990 en hann á ættir sínar að rekja til Haíti. Max hefur leikið með háskólaliðinu Indiana University-Purdue University undanfarin ár og var sjöundi markahæsti leikmaðurinn í efstu deild háskólaboltans í fyrra.

Max kemur til Íslands í maí en hann er búinn að spila með Wichita Wings í MLS deildinni í innanhúsfótbolta frá áramótum. Um er að ræða vinsæla deild en um 5000 manns mæta á leiki þar.

Theo Furness hefur einnig fengið leikheimild með Tindastóli á nýjan leik en hann hjálpaði liðinu að komast upp í fyrstu deild í fyrra. Theo, sem er kantmaður, hefur í vetur leikið með utandeildarliðinu Norton & Stockton á Englandi sem og futsal liði Middlesbrough.

Á dögunum gengu bræður hans Dominic og Seb Furness einnig í raðir Tindastóls. Þá mun enski framherjinn Ben J Everson einnig leika með Stólunum í sumar.

Heimild: Heimasíða Tindastóls

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.