Fotbolti.net
12.04.12 - 12:00
Hafliði Breiðfjörð

Trausti Björn Ríkharðsson í ÍR (Staðfest)

Trausti Björn er kominn aftur í ÍR.

Trausti Björn er kominn aftur í ÍR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR hefur fengið góðan liðstyrk fyrir tímabilið því Trausti Björn Ríkharðsson fyrrum fyrirliði liðsins hefur fengið félagaskipti úr Fylki yfir í ÍR.
Trausti Björn hefur ákveðið að taka baráttuna með félaginu í 1.deild og styðja við þá uppbyggingu sem farin er í gang.

Gríðarlega mikill liðsstyrkur er í Trausta, þar sem hann var máttarstólpi liðsins áður en hann ákvað að reyna fyrir sér hjá Fylki, þar sem hann fékk fá tækifæri.

Trausti verður klár fyrir síðasta leik ÍR í lengjubikar gegn Tindastól sem verður á ÍR velli á morgun föstudag.

Trausti Björn Ríkharðsson er 27 ára gamall hægri bakvörður. Hann hóf feril sinn með ÍR sumarið 2003 og lék með liðinu út tímabilið 2010 þegar hann gekk til liðs við Fylki. Hann spilaði 12 leiki í Pepsi-deildinni í sumar. Hann hefur spilað 100 leiki fyrir ÍR í deild og bikar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.