12.04.12 - 23:24
Hafliði Breiðfjörð
David Elebert í Fylki (Staðfest)

Elebert eftir undirskriftina.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Elebert eftir undirskriftina.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Írinn David Elebert skrifaði í kvöld undir samning við Fylkismenn en það kom fram á Fylkismenn.is. Elebert stóðst læknisskoðun í gær og mun samningur hans gilda út tímabilið 2012. Elebert fékk úthlutað treyjunúmerið 25.
Elebert fór með Fylkismönnum í æfingaferð til Spánar fyrr í mánuðinum og hann hefur síðan æft með liðin undanfarna daga. Hann lék meðal annars með Fylki í 2-1 tapi gegn Breiðabliki í æfingaleik í fyrrakvöld.
Fylkismenn hafa verið í leit að liðsstyrk í vörnina en óvíst er hvort Þórir Hannesson geti leikið með liðinu í sumar vegna meiðsla.
David Elebert hóf ferilinn hjá Preston North End í Englandi en spilaði ekki leik fyrir aðalliðið. Hann var lánaður til enska liðsins Scarborough árið 2005 þar sem hann lék 12 leiki. Árið 2006 gekk hann til liðs við skoska félagið Hamilton Academical sem þá var í næst efstu deild.
Tímabilið 2007-2008 vann liðið skosku fyrstu deildina þar sem Elebert var mikilvægur hlekkur í vörninni, lék 34 deildarleiki og skoraði 5 mörk.
Hann lék áfram með liði Hamilton í skosku úrvalsdeildinni til enda leiktíðar 2010-2011 en þá féll liðið niður í fyrstu deildina og Elebert fékk frjálsa sölu.
Elebert á að baki 135 deildarleiki fyrir Hamilton Academical skoraði 8 mörk í þeim leikjum. Þá á hann að baki 3 landsleiki fyrir U-21 árs lið Íra og var hann fyrirliði í einum þeirra.

Heimild: Fylkismenn.is