Fotbolti.net
12.05.09 - 08:04
Magnús Már Einarsson

Daníel Hjaltason í Víking R. (Staðfest)

Daníel í leik með Víkingi árið 2006.

Daníel í leik með Víkingi árið 2006.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gunnlaugur Júlíusson

Daníel Hjaltason hefur gengið að nýju til liðs við Víking Reykjavík en hann hefur gert samning við félagið út þetta tímabil. Daníel kláraði samning sinn við Val í vetur en hann hefur undanfarnar vikur æft með Víkingi og nú hefur hann samið við félagið.
Daníel lék með Víkingi frá 1999-2006 við góðan orðstír en í kjölfarið gekk hann til liðs við Val.

Í fyrra var Daníel í láni hjá Víkingi síðastliðið sumar en hann lék sjö leiki með liðinu í fyrstu deildinni þó að meiðsli hafi sett strik í reikninginn.

Daníel er þrítugur en hann kom til Vals frá Víkingi í nóvember 2006 og lék 12 leiki með Val í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim tvö mörk.

Hann er uppalinn hjá Leikni í Breiðholtinu en gekk í raðir Víkings árið 1999. Hann á að baki 49 leiki með Leikni á árunum 1996-1998 og 111 leiki með Víkingi.

Hjá Víkingi mun Daníel leika í treyju númer 29. Hann lék á sínum tíma númer 10 og í treyju númer 30 í fyrra.

Heimild: Vikingur.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.