12.05.09 - 14:22
Hafliði Breiðfjörð
Paul McShane í Fram (Staðfest)

Paul McShane í leik með Fram síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Skotinn Paul McShane er genginn í raðir Fram að nýju og mun spila með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Félagið greindi frá þessu í yfirlýsingu í dag.
McShane hafði áður tekið ákvörðun um að leggja skóna á hilluna en hefur nú tekið ákvörðun um að koma aftur til Íslands og halda áfram að leika með Fram.
,,Paul á son í Grindavik sem hann vildi eyða sumrinu með og einnig langaði hann að taka þátt í þeim verkefnum sem eru framundan hjá Fram í sumar. Þetta er mikið gleðiefni fyrir okkur Framara og bjóðum við Paul velkominn til baka og megi hann eiga gott sumar með guttanum og Fram,\" segir á vef Fram í dag.
McShane, sem er þrítugur, kom til Fram fyrir síðasta tímabil en áður hafði hann leikið með Grindvíkingum í níu ár.
Á síðustu leiktíð lék McShane frábærlega á miðjunni hjá Fram en hann skoraði fimm mörk í 21 leik í efstu deild.
Ljóst er að um gríðarlega mikinn liðsstyrk er að ræða fyrir Fram sem vann ÍBV í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar og mætir svo liði FH í annarri umferðinni á fimmtudag.

Heimild: Fram.is