Fotbolti.net
12.05.09 - 19:01
Magnús Már Einarsson

Ásgeir Örn Ólafsson í Selfoss á láni (Staðfest)

Ásgeir Örn Ólafsson í Selfoss á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfyssingar hafa fengið varnar og miðjumanninn Ásgeir Örn Ólafsson á láni frá KR.
Ásgeir, sem er 21 árs, þekkir vel til Gunnlaugs Jónssonar þjálfara Selfyssinga en þeir voru liðsfélagar hjá KR.

Ásgeir Örn kom inn í meistaraflokkslið KR á miðju tímabilið árið 2007 og lék fimm leiki í liðinu.

Í fyrra settu meiðsli strik í reikninginn hjá Ásgeiri en hann lék þrjá leiki í Landsbankadeildinni og einn í Visa-bikarnum.

Í vetur spilaði Ásgeir þónokkuð í miðri vörn KR en eftir komu hollenska varnarmannsins Mark Rutgers hefur samkeppnin aukist og nú hefur þessi ungi leikmaður farið til Selfyssinga.

Selfyssingar gerðu 1-1 jafntefli við KA í fyrstu umferð fyrstu deildarinnar um helgina en liðið mætir ÍR í annarri umferðinni á föstudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.