12.06.25 - 13:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tveir leikmenn hættu við að koma í Njarðvík út af Reykjanesbrautinni

Njarðvík fagnar marki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Njarðvík fagnar marki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari Njarðvíkur, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag og fór þar um víðan völl. Ræddi hann meðal annars mikið um Njarðvík og verkefnið sem er í gangi þar.
Gunnar Heiðar er á sínu öðru heila tímabili með Njarðvík en hann hefur unnið gott starf hjá félaginu og reynt að skapa ákveðinn kúltúr þarna.
Gunnar Heiðar er á sínu öðru heila tímabili með Njarðvík en hann hefur unnið gott starf hjá félaginu og reynt að skapa ákveðinn kúltúr þarna.

TENGT EFNI
Ætlaði aldrei að verða þjálfari en er nú einn sá mest spennandi á Íslandi
Hann sagði frá því í þættinum að það væri þó ákveðin hræðsla hjá leikmönnum á höfuðborgarsvæðinu að koma í Njarðvík. Lenti hann í því fyrir yfirstandandi tímabil að tveir leikmenn neituðu félaginu út af Reykjanesbrautinni, það væri of langt að fara hana. Sjálfur keyrir Gunnar Heiðar frá Akranesi í Njarðvík nánast alla daga.
„Ég get alveg sagt ykkur það að það voru tveir íslenskir leikmenn sem við vildum fá... annar þeirra, eiginlega báðir, hættu við því brautin var á milli," sagði Gunnar Heiðar.
„Það tekur 20 mínútur að keyra hana. Ég er úr Eyjum og steingrjóthaltu kjafti."
Njarðvík er enn taplaust og er í öðru sæti Lengjudeildarinnar þegar sjö leikir eru búnir.