
Gunnar Heiðar Þorvaldsson er einn áhugaverðasti þjálfarinn í íslenskum fótbolta í dag. Hann hefur gert virkilega flotta hluti með Njarðvík síðustu árin og mun nafn hans líklega koma upp ef það losna störf í Bestu deildinni.
Gunnar Heiðar var í áhugaverðu viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag þar sem hann fór um víðan völl. Þar sagði hann meðal annars að hann hefði aldrei ætlað sér að verða þjálfari þegar hann var leikmaður.
Gunnar Heiðar var í áhugaverðu viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag þar sem hann fór um víðan völl. Þar sagði hann meðal annars að hann hefði aldrei ætlað sér að verða þjálfari þegar hann var leikmaður.
„Það var bara fyrir stuttu. Ég ætlaði aldrei að verða þjálfari," sagði Gunnar Heiðar en hann hugsaði ekki um það þegar hann var leikmaður.
„Metnaðurinn og dugnaðurinn var það sem kom mér langt. Þegar ég er fluttur aftur til Eyja þegar ég hætti í atvinnumennsku þá fæ ég símtal frá doktornum Hjalta Kristjáns út af KFS. Ég hef alltaf verið mikill stuðningsmaður þess að KFS sé í Eyjum því það eru ekki allir sem geta tekið skrefið úr yngri flokkum og beint upp í meistaraflokk, sérstaklega ekki upp í Bestu deildina."
„Hjalti segir við mig að þeim vantaði þjálfara og ef ég tæki það ekki þá myndu þeir hætta. 'Takk fyrir það Hjalti minn'. Ég ákvað svo að koma og hjálpa til. Þar byrja ég að finna ástina fyrir leiknum aftur. Ég ætlaði að gera eitthvað annað en þetta var fínt til þess að vera aðeins inn í þessu. Það gekk frábærlega hjá okkur og það er gaman að segja frá því að maður var mikið inn á MarineTraffic að sjá hvaða bátar voru úti og hvenær leikmennirnir gætu mögulega komið í land. Það var gaman að því," sagði Gunnar Heiðar og hló.
Hann gerði flotta hluti með KFS og tók svo við Vestra í eitt tímabil. Þar fékk hann góðan lærdóm.
„Ég held að Sammi hafi hringt í alla á Íslandi áður en hann hringdi í mig. Að segja já við því giggi á þeim tíma var svolítið klikkað, en ég elska Samma og fólkið fyrir vestan. Ég er Eyjamaður og það er alltaf eyjan á móti öllum öðrum og það var þannig líka fyrir þá. Það var mánuður í mót og þeir voru ekki með neinn þjálfara. Dreifbýlisstuðningurinn í mér kom upp og ég ákvað að kýla á þetta. Ég hitti Samma, hann kom með A4 blað og sagði við mig að þetta væru strákarnir í liðinu. 'Gangi þér vel'. Við fórum í æfingaferð og svo var mánuður í mót. Þetta var ævintýri og við gerðum það besta úr þessu," sagði Gunnar Heiðar.
„Mig langar að hjálpa ungum íslenskum leikmönnum að fá tækifæri til að verða betri."
Hægt er að hlusta á allt viðtalið í spilaranum hér fyrir neðan þar sem Gunnar Heiðar ræðir meira um starfið hjá Njarðvík.
Athugasemdir