Fotbolti.net
12.07.08 - 09:56
Guðmundur Dagur Ólafsson

Sessegnon til PSG (Staðfest)

Sessegnon til PSG (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franska 1.deildarliðið Paris St Germain hefur fengið benínska miðjumanninn Stephane Sessegnon frá Le Mans.
Sessegnon, sem skoraði fimm mörk í 30 deildarleikjum með Le Mans á síðustu leiktíð, mun kosta Parísarliðið í kringum 8 milljónir Evra.

Þessi 24 ára gamli leikmaður er hluti af landsliði Benín sem er að reyna að komast á HM 2010 í Suður Afríku og spilaði líka með þeim í Afríkukeppni landsliða síðasta vetur.

Hann hafði verið orðaður við ensku Úrvalsdeildarfélögin Newcastle United og Arsenal en það var PSG sem náði að lokum að tryggja sér hann.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.