Fotbolti.net
12.07.08 - 20:50
Magnús Már Einarsson

Daníel Hjaltason í Víking á láni (Staðfest)

Daníel Hjaltason í Víking á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Daníel Hjaltason hefur gengið til liðs við Víking R. á lánssamningi frá Val út tímabilið en þetta kemur fram á vikingur.net.
Búið var að ganga frá samningum í gær en síðar kom í ljós að að Valur gæti ekki kallað Daníel til baka á yfirstandandi tímabil vegna félagaskiptareglna. Valsmenn hafa hins vegar samþykkt að lána Daníel út tímabilið þó að liðið geti ekki kallað hann til baka.

Víkingur var eitt af þremur félögum sem ræddu við Daníel en Leiknir og Stjarnan höfðu líka áhuga á að fá hann til liðs við sig.

Hann er 29 ára gamall og kom til Vals frá Víkingi í nóvember 2006 og lék 12 leiki með Val í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim tvö mörk.

Hann hefur aðeins leikið einn leik í deildinni í ár en hefur misst mikið úr vegna meiðsla.

Hann er uppalinn hjá Leikni í Breiðholtinu en gekk í raðir Víkings árið 1999. Hann á að baki 49 leiki með Leikni á árunum 1996-1998 og 104 með Víkingi.

Heimild: Vikingur.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.