Fotbolti.net
12.07.26 - 11:19
Brynjar Ingi Erluson

HM-stjarnan á leið til Ajax

HM-stjarnan á leið til Ajax
Canon

Mynd: EPA

Azzedine Ounahi, miðjumaður Girona og Marokkó, er á leið til hollenska félagsins Ajax.
Maður dagsins á HM - Blómstrar með landi en ekki liði
TENGT EFNI

Maður dagsins á HM - Blómstrar með landi en ekki liði

Ounahi er 26 ára gamall og hefur heillað með Marokkó á síðustu tveimur heimsmeistaramótum.

Þegar hann spilar á HM lítur hann út eins og heimsklassaleikmaður, en sagan hefur verið önnur með félagsliðum. Hann var magnaður þegar Marokkó fór í undanúrslit á HM 2022 og aftur þegar þjóðin komst í 8-liða úrslit í ár, en hefur ekki náð sömu hæðum með félagsliðum.

Ounahi féll með Girona úr La Liga á síðustu leiktíð, en áður lék hann með Panathinaikos, Marseille og Angers.

Hann átti reyndar ágætt tímabil með Panathinaikos og var valinn í lið ársins í grísku úrvalsdeildinni, en tókst ekki að fylgja því nógu vel eftir.

Ounahi fær nú annað tækifæri til að sanna sig, en hann er að ganga í raðir Ajax í Hollandi.

Ajax er einnig að reyna að fá brasilíska sóknarmanninn Marcos Leonardo frá Al Hilal. Leonardo hefur mikinn áhuga á að fara til Ajax, en ekki er ljóst hvort hann komi á láni eða gangi varanlega í raðir félagsins.

Ajax hafnaði í 5. sæti hollensku deildarinnar á síðustu leiktíð og mun leika í Sambandsdeildinni á komandi tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.