Maður dagsins á HM - Fær of mikla gagnrýni

Jude Bellingham er maður dagsins

Mynd: EPA

Haaland og Bellingham eru góðir vinir frá því þeir spiluðu saman hjá Dortmund

Mynd: EPA

Jude Bellingham er maður dagsins

Mynd: EPA

Jude Bellingham, leikmaður enska landsliðsins, er maður dagsins á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Bellingham sá um að koma Englendingum í undanúrslit með tveimur mörkum í 2-1 sigrinum á Noregi í gær.
Miðjumaðurinn hefur skinið skært á mótinu og er kominn með sex mörk.
Hann jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks þegar hann brunaði í gegnum teiginn vinstra megin og lagði boltann hægra megin við Orjan Nyland. Síðan skoraði hann sigurmarkið í upphafi framlengingarinnar þegar hann hirti frákast eftir skot Morgan Rogers.
Bellingham var valinn maður leiksins af FIFA og ensku stuðningsmennirnir sungu hástöfum lagið „Hey Jude“ honum til heiðurs.
Fær allt of mikla gagnrýni
Englendingurinn hefur þurft að þola mikla gagnrýni, bæði frá stuðningsmönnum Englands og Real Madrid.
„Jude er góður vinur minn. Við áttum tvö góð ár saman hjá Dortmund og erum í stöðugu sambandi. Hann er svo góður náungi og það var svo gaman hjá okkur.“
„Það kom mér ekki á óvart að hann hafi skorað tvö mörk og skilað svona frammistöðu. Það eina sem hann fær helst of mikið af er gagnrýni fyrir að skora ekki nógu mörg mörk.“
„Hann verðskuldar það ekki, því hann er einn sá besti í heiminum. Hann er miðjumaður sem skorar mörk og getur farið framhjá hverjum einasta leikmanni á vellinum,“ sagði Erling Braut Haaland, sem lék með Bellingham hjá Dortmund.
Bellingham er í frábærum gír og er X-faktorinn í enska liðinu, sem dreymir um að komast í úrslitaleik HM í fyrsta sinn síðan það vann keppnina árið 1966.
Mótherji Englendinga í undanúrslitum er Argentína og viðureignir þjóðanna hafa verið litríkar í gegnum tíðina. Þar má nefna hönd Guðs á HM 1986 og vonbrigðin árið 1998, þegar David Beckham sá rautt og England féll úr leik eftir vítakeppni í 16-liða úrslitum.
Alls hafa þjóðirnar mæst fimm sinnum á HM. England hefur unnið þrjá leiki en Argentína tvo. Englendingar unnu síðast þegar liðin mættust í riðlakeppninni árið 2002, en unnu einnig viðureignirnar 1966 og 1962.