Fotbolti.net
12.08.08 - 12:03
Hörður Snævar Jónsson

Cesar til Tottenham (Staðfest)

Cesar til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur gengið frá kaupunum á hinum spænska Cesar Sanchez markverði Real Zaragoza.
Juande Ramos stjóri Tottenham leitaði til Cesar eftir að hann hætti við Stephen Bywater markvörð Derby.

Zaragoza leyfði Cesar að fara enda féll liðið úr La Liga á síðustu leiktíð.

Cesar mun að líkindum verma varamannabekk Tottenham því félagið fékk Heurelho Gomes frá PSV fyrr í sumar.

Cesar á að baki landsleik með spænska landsliðinu og lék í úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2002 með Real Madrid þegar liðið vann Bayern Leverkusen.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.