12.08.10 - 07:18
Magnús Már Einarsson
Marlon Harewood til Blackpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nýliðar Blackpool hafa gert tveggja ára samning við framherjann Marlon Harewood.
Harewood kemur frítt til Blackpool en hann yfirgaf Aston Villa fyrr í sumar. Líklegt er að hann leiki sinn fyrsta leik með Blackpool gegn Wigan í fyrstu umerðinni í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.
Harewood æfði með Blackpool á dögunum og upphaflega gekk illa í samningaviðræðum við félagið en samkomulag náðist síðan í gærköldi.
Þar með varð Harewood fimmti leikmaðurinn til að ganga til liðs við Blackpool í vikunni en áður höfðu Malaury Martin, Ludovic Sylvestre, Elliot Grandin og Craig Cathcart samið við félagið.

Heimild: Sky