Fotbolti.net
12.08.10 - 10:10
Tryggvi Páll Kristjánsson

Christian Poulsen til Liverpool (Staðfest)

Christian Poulsen til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hafa gert þriggja ára samning við Christian Poulsen.
Poulsen kemur frá Juventus fyrir £4.5 miljónir eftir að hafa spilað á Ítalíu í tvö ár, og mun fá treyju númer 28.

Javier Mascherano er líklega á leið frá Liverpool í sumar og hefur því Roy Hodgson verið að leita að nýjum manni í sumar og hefur ákveðið að fá Poulsen aftur til sín en Poulsen spilaði einmitt undir Hodgson hjá FC Köbenhavn fyrir 10 árum síðan.

Poulsen hefur spilað 77 landsleiki fyrir Danmörku, og hefur komið víða við á ferlinum. Hann byrjaði ferilinn hjá Holbæk, og hefur síðan spilað í FCK, Schalke, Sevilla og Juventus.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.