Fotbolti.net
12.08.10 - 10:27
Magnús Már Einarsson

Ricardo Carvalho til Real Madrid (Staðfest)

Ricardo Carvalho til Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur gengið frá kaupum á Ricardo Carvalho en hann kemur til félagsins frá Chelsea á 6,7 milljónir punda.
Þessi 32 ára gamli leikmaður er búinn að standast læknisskoðun en hann verður kynntur á fréttamannafundi hjá Real Madrid síðar í dag.

Hjá Real Madrid hittir Carvalho fyrir Jose Mourinho en þeir unnu saman bæði hjá Porto og Chelsea á sínum tíma.

Mourinho keypti Carvalho til Chelsea frá Porto á 19,8 milljónir punda árið 2004.

Á tíma sínum hjá Chelsea varð Carvalho þrívegis enskur meistari og þrívegis bikarmeistari en hann skoraði ellefu mörk í yfir 200 leikjum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.