12.09.08 - 10:05
Magnús Már Einarsson
Robbie Fowler til Blackburn Rovers (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Robbie Fowler hefur gert þriggja mánaða samning við Blackburn og getur leikið sinn fyrsta leik þegar að liðið mætir Arsenal um helgina.
Fowler, sem er 33 ára, hefur æft með Blackburn síðan Paul Ince tók við liðinu í sumar.
Samningur hans við félagið er eins og fyrr segir til þriggja mánaða en Fowler mun fá borgað fyrir hvern spilaðan leik.
,,Ég er ánægður þar sem hann er reyndur markaskorarari. Það er ekki svo langt síðan að hann skoraði mikið af mörkum á Anfield,\" sagði Ince.
,,Ég held að hann geti ennþá gert góða hluti. Ef hann stendur sig vel þá er engin ástæða til annars en við getum framlengt samninginn.\"
Fowler yfirgaf Cardiff í sumar en þessi fyrrum leikmaður Liverpool er fjórði markahæsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Heimild: BBC