Fotbolti.net
12.11.08 - 16:55
Hörður Snævar Jónsson

Albert Högni í Hauka (Staðfest)

Albert í leik með ÍR sumarið 2007.

Albert í leik með ÍR sumarið 2007.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Albert Högni Arason hefur skrifað undir eins árs samning við Hauka en Albert lék áður með Haukum tímabilið 2006 þegar Haukar féllu úr 1.deildinni.
Albert gekk svo til liðs við Grindavíkur og lék með þeim sjö leiki, fimm í 1.deildinni og tvö í VISA-bikarnum. Hann skipti síðan yfir í ÍR um mitt sumar.

Í sumar lék Albert svo með Njarðvík í 1.deildinni en hann kom við sögu í sautján leikjum.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hauka fyrir næsta tímabil en fleiri nýjir leikmenn hafa verið að æfa með liðinu að undanförnu.

Heimild: Haukar.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.