Fotbolti.net
12.12.08 - 11:04
Hafliði Breiðfjörð

Ian Harte til Blackpool (Staðfest)

Ian Harte.

Ian Harte.

Canon

Mynd: Getty Images

Ian Harte fyrrverandi landsliðsmaður Írlands gekk í gær í raðir enska Championship félagsins Blackpool.
Hann gerir samning við félagið sem gildir til eins mánaðar í senn.

Harte sem er 31 árs gamall yfirgaf Sunderland í júní og hefur æft með Blackpool upp á síðkastið eftir að hafa verið áður á reynslu hjá Wolves, Sheffield United og Charlton.

Hann mun verða í leikmannahópi Blackpool sem mætir Nottingham Forest á morgun.

Harte hefur leikið 64 landsleiki fyrir Írland. Hann hóf feril sinn hjá Leeds og var í níu ár hjá félaginu áður en hann gekk í raðir Levante á Spáni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.