12.12.08 - 11:35
Magnús Már Einarsson
Pétur Heiðar og Kristján Sigurólason í Stryn (Staðfest)

Kristján Sigurólason í leik gegn Þrótti sumarið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pétur Heiðar eftir sigur Hamranna/Vina í 3.deildinni í sumar.

Mynd: Úr einkasafni

Kristján Sigurólason og Pétur Heiðar Kristjánsson hafa gengið til liðs við Stryn sem leikur í norsku 3.deildinni.
Íslenskur þjálfari, Jóhann Sigurðsson, er að taka við liði Stryn en hann hefur áður leikið með liðinu.
Pétur og Krisján koma til Stryn fyrir tilstuðlan Jóhanns en báðir leikmennirnir munu gera tveggja ára samning við félagið.
Pétur Heiðar var spilandi þjálfari hjá Hömrunum/Vinum síðastliðið sumar en Kristján hefur alla tíð leikið með Þór.
Kristján er tvítugur varnarmaður en hann hefur leikið með meistaraflokki Þórs undanfarin þrjú ár þrátt fyrir ungan aldur. Í sumar lék hann sextán leiki í fyrstu deildinni og tvo í VISA-bikarnum.
,,Það er andi í þessu liði og öll umgjörð í kringum liðið er mjög góð. Mér líst mjög vel á þjálfarann og ég hef fulla trú á að þetta lið geti náð langt,\" sagði Kristján við Fótbolta.net í gær.
Pétur Heiðar er 26 ára miðju og sóknarmaður en hann er eins og Kristján uppalinn hjá Þór. Sumarið 2007 gekk Pétur Heiðar í raðir Keflvíkinga og lék með liðinu síðari hluta sumars.
Hann var síðan spilandi þjálfari hjá Hömrunum/Vinum síðastliðið sumar og stýrði liðinu til sigurs í 3.deildinni. Hann lék sjálfur alls fjórtán leiki síðastliðið sumar.
,,við erum að fara þarna út í smábæ þar sem allt snýst um fótboltann. Það er mikill metnaður í þessu liði og stefnan hjá okkur er að taka eitt ár í 3. deildinni og fljúga upp um deild og þá erum við komnir í alvöruna,\" sagði Pétur við Fótbolta.net.