Fotbolti.net
12.12.08 - 16:39
Hafliði Breiðfjörð

Ronaldo gengur í raðir Corinthians (Staðfest)

Ronaldo hefur nú fundið sér til í Brasilíu.

Ronaldo hefur nú fundið sér til í Brasilíu.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski framherjinn Ronaldo er nú endanlega genginn í raðir brasilíska félgsins Corinthians en félagið staðfesti komu hans í dag. Ronaldo sem er 32 ára gamall yfirgaf AC Milan í júní er samningur hans rann út en hefur glímt við meiðsli á hné síðan í febrúar.
Ronaldo sagði þegar hann var kynntur sem leikmaður Corinthians í dag að það væri mikil áskorun að snúa aftur en hann yrði tilbúinn að spila á fullu fljótlega.

,,Ég verð að sýna það innan vallar,\" sagði hann. ,,Utan vallar eru þetta bar orð, en fótboltinn verðru sýndur á vellinum.\"

Ronaldo gerði eins árs samning við félagið sem var að vinna sér sæti í efstu deild í Brasilíu að nýju. Talið er að laun hans verði 127 þúsund evrur á mánuði.

,,Ég er bara leikmaður eins og aðrir hérna, og hef sömu réttindi, og sömu skyldur, eins og allir aðrir. Ég mun ekki njóta neinna forréttinda,\" sagði hann.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Ronaldo spilar í Brasilíu síðan hann fór frá Cruzeiro til PSV Eindhoven aðeins 17 ára gamall en þar var hann á sama tíma og Eiður Smári Guðjohnsen.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.