Fotbolti.net
12.12.09 - 16:26
Hafliði Breiðfjörð

Rafn Andri Haraldsson í Breiðablik (Staðfest)

Rafn Andri í búningi Breiðabliks.

Rafn Andri í búningi Breiðabliks.

Canon

Mynd: Breiðablik

Rafn Andri Haraldsson er genginn í raðir Breiðabliks frá Þrótti en hann skrifaði undir samning til ársins 2012 við Breiðablik í dag.
Rafn Andri er fæddur 1989 og hefur leikið 68 leiki með meistaraflokki Þróttar og skorað í þeim 6 mörk.

Rafn hefur ennfremur leikið 7 leiki með U-17 ára liði Íslands, auk 8 leikja með U-19 ára liðinu og 1 leiks með U-21 árs liðinu.

Hann lék 18 leiki með Þrótti í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark. Hann var tvisvar valinn leikmaður umferðarinnar hér á Fótbolta.net.

Hann var í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Þróttar sem stofnuðu Facebook síðu og hvöttu hann og Hauk Pál Sigurðsson til að vera áfram í liðinu í 1. deildinni. Rafn Andri ákvað hinsvegar að ganga til liðs við Breiðablik.

Rafn Andri er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Breiðablik frá því Íslandsmótinu lauk. Áður höfðu Jökul I. Elísabetarson komið úr Víkingi og Högni Helgason úr Fjarðabyggð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.