Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 12. desember 2016 17:15
Magnús Már Einarsson
Eiríkur Ingi í Augnablik (Staðfest)
Eiríkur Ingi Magnússon.
Eiríkur Ingi Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Hægri bakvörðurinn Eiríkur Ingi Magnússon hefur gengið til liðs við Augnablik í 4. deildinni.

Eiríkur Ingi hefur verið fastamaður í liði Leiknis Reykjavíkur undanfarin þrjú ár.

Eiríkur spilaði alla leiki Leiknis í Inkasso-deildinni síðastliðið sumar.

Árið 2014 fór hann með liðinu upp í Pepsi-deildina þar sem hann spilaði tuttugu leiki.

Hinn 25 ára gamli Eiríkur er frá Siglufirði en hann lék með KF í fyrstu og annarri deildinni áður en hann gekk í raðir Leiknis.
Athugasemdir
banner
banner