13.01.05 - 17:02
Magnús Már Einarsson
Morientes til Liverpool (Staðfest)

Fernando Morientes hefur samþykkt þriggja og hálfs árs samning við Liverpool og verður hann kynntur á blaðamannafundi hjá liðinu um klukkan 17 á morgun. Liverpool hefur staðfest þetta en Morientes stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag og skrifaði undir samninginn núna rétt fyrir klukkan 17.
Liverpool mun borga Real Madrid 5,5 milljónir punda fyrir þennan 28 ára sóknarmann og þá geta 700 þúsund pund bæst við en það er talið vera ef hann mun leika ákveðinn fjölda leikja með Liverpool.
Þetta þýðir að Morientes ætti að getað spilað með Liverpool gegn Manchester United á laugardag og verður spennandi að sjá hann spila sinn fyrsta leik í enska boltanum. Rafael Benitez stjóri Liverpool hefur gefið út að Morientes muni spila ef hann verður búinn að fá alþjóðlegt leyfi til þess.
Benítez sagði þetta um Morientes í dag: ,,Hann verður mikilvægur fyrir okkur. Hann er sterkur skallamaður, klárar færin sín vel og er jafnvígur á báða fætur. Við þurftum reynslumikla markamaskínu, fyrir stuðningsmennina, fyrir klúbbinn og fyrir leikmennina."
Sjálfur er Morientes spenntur en hann lét hafa eftir sér í gær “Ég get ekki beðið eftir því að spila fyrsta leikinn og ef hann væri á móti Manchester United gæti það ekki orðið betra. Það yrði frábær byrjun fyrir mig og enn betri ef leikurinn ynnist.”
"Ég er mjög spenntur yfir því að spila með Liverpool og þetta er stærsta ákvörðunin sem ég hef tekið á mínum knattspyrnuferli" sagði Morientes í morgun. "Ég ætla að vinna eins og einn af strákunum og reyna að gera Liverpool enn stærri en liðið er í dag. Ég þekki Rafa Benítez mjög vel og ég ætla að gera allt fyrir hann og fyrir aðdáendur Liverpool."
Morientes getur ekki spilað með Liverpool í Meistaradeildinni en liðið mætir Bayer Leverkusen í 16-liða úrslitum keppninnar. "Það er leitt að geta ekki spilað í Meistaradeildinni , en ég hefði hvort sem er ekki spilað mikið þar hefði ég verið áfram í Madríd. Nú ætla ég bara að hjálpa Liverpool til að komast þangað á næsta tímabili."
Margir bíða spenntir eftir því að sjá Morientes frammi með Milan Baros en Tékkinn snjalli var hæstánægður með að fá Moroentes til liðsins: "Þetta eru frábærar fréttir fyrir Liverpool" sagði Baros.
"Fernando er í heimsklassa og ég er hæstánægður með að hann sé kominn á Anfield. Ég hlakka til að þróa samvinnu okkar á vellinum.
Fernando er frábær í loftinu, alveg eins og Jan Koller. Ég og Jan höfum náð frábærum árangri með Tékkum og ég held að við Fernando getum orðið alveg jafn góðir á Englandi. Hann er sterkur og mjög hæfileikaríkur og ég er viss um að hann geti hjálpað okkur við að komast á toppinn í úrvalsdeildinni."
Morientes varð markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili þegar hann var í láni hjá Monaco. Hann skoraði 9 mörk, meðal annars gegn Real Madrid og svo tvö í leikjunum gegn Chelsea í undanúrslitunum. Monaco komst í úrslitaleikinn en tapaði þar 3-0 fyrir Porto.
Morientes sem er talinn henta enska leikstílnum mjög vel, byrjaði feril sinn með Albacete áður en hann fór til Real Zaragoza. Hann fór svo til Real Madrid árið 1997 og vann deildina tvisvar og þrjá Meistaradeildartitla með félaginu. Hann skoraði meðal annars í úrslitaleiknum árið 2000 þegar Real vann Valencia.
En eftir komu Ronaldo til Real Madrid fór að síga á ógæfuhliðina hjá Morientes og hann fékk færri tækifæri hjá liðinu. Eftir gott lánstímabil með Monaco sneri hann aftur síðasta sumar.
Þá var Michael Owen á leiðinni frá Liverpool til Real og Benítez reyndi að fá Morientes í skiptum þá en án árangurs. Þegar nær dró áramótum var han svo æ oftar orðaður við Liverpool sem fylgdust með honum í allan vetur.
Nú er sögunni semsagt lokið og spennandi verður að sjá framgang Morientes með Liverpool sem þurftu sárlega á sóknarmanni að halda.
Sjá einnig:
Morientes í fréttaleit