Það er leikið í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld og er svo sannarlega áhugaverður leikur á dagskrá.
Liverpool tekur á móti Arsenal á Anfield. Bæði þessi lið spiluðu í enska FA-bikarnum um síðustu helgi. Liverpool lagði Shrewsbury að velli á meðan Arsenal tapaði óvænt gegn Nottingham Forest.
Bæði lið sakna leikmanna sem eru í Afríkukeppninni. Liverpool er án Sadio Mane, Mohamed Salah og Naby Keita; Arsenal er án Nicolas Pepe, Thomas Partey og fyrirliðans Pierre-Emerick Aubameyang.
Það verður áhugavert að sjá hvernig liðin verða. Þetta er fyrri leikur liðanna í undanúrslitunum.
Sigurliðið í þessu einvígi mun mæta Chelsea í úrslitaleiknum.
fimmtudagur 13. janúar
ENGLAND: League Cup
19:45 Liverpool - Arsenal (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir