Fotbolti.net
13.02.10 - 18:43
Magnús Már Einarsson

Kjartan Henry í KR (Staðfest)

Kjartan Henry í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða KR

Kjartan Henry Finnbogason skrifaði í dag undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt KR.
Kjartan Henry fékk sig lausan undan samningi frá norska félaginu Sandefjord fyrr í vikunni og nú hefur hann samið við KR.

Eftir að hafa leikið í tvö ár með meistaraflokki KR þá gekk Kjartan Henry til liðs við Glasgow Celtic í lok árs 2004.

Síðan þá hefur hann einnig leikið með Åtvidaberg í Svíþjóð, Sandefjord í Noregi og Queen\'s Park og Falkirk í Skotlandi.

KR-ingar hafa verið að leita að liðsstyrk í fremstu víglínu eftir að Guðmundur Benediktsson tók við þjálfun Selfyssinga síðastliðið haust.

Kjartan Henry er núna kominn en KR-ingar sömdu einnig við Viktor Bjarka Arnarsson á dögunum.

Heimild: Heimasíða KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.