13.03.09 - 18:32
Magnús Már Einarsson
Stuart Taylor til Cardiff á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cardiff City hefur fengið markvörðinn Stuart Taylor á láni frá Aston Villa en samningurinn gildir í einn mánuð.
Taylor, sem er 28 ára, lék tíu leiki með Arsenal þegar að liðið vann ensku úrvalsdeildina tímabilið 2001/2002.
Ferill hans hefur ekki náð sömu hæðum síðan þá og hefur hann verið þriðji markvörður Aston Villa í vetur en hann hefur leikið einungis 17 leiki síðan hann kom til félagsins árið 2005.
Tom Heaton og Peter Enckelman, markverðir Cardiff, eru báðir meiddir og Dimi Konstantopoulos, sem er í láni hjá Coventry, gerði slæm mistök gegn Norwich á þriðjudag.
Því ákvað Paul Jones stjóri Cardiff að fá Taylor á láni og möguleiki er á að hann spili sinn fyrsta leik gegn Bristol á sunnudag.

Heimild: BBC