13.03.09 - 19:56
Hafliði Breiðfjörð
Giovani dos Santos lánaður til Ipswich (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Giovani dos Santos framherji Tottenham hefur verið lánaður til Ipswich Town út tímabilið en þetta var tilkynnt í kvöld.
Dos Santos sem er 19 ára gamall Mexíkói verður í leikmannahópi Ipswich sem mætir Reading á laugardag.
Hann hafði komið til Tottenham frá Barcelona á fjórar milljónir punda síðasta sumar eftir að hafa leikið 28 leiki með spænska stórveldinu.
Hann lék 12 leiki fyrir Tottenham á tímabilinu og skoraði eitt mark sem kom í sigri á Shakthar Donetsk í UEFA Cup í síðasta mánuði.

Heimild: BBC