13.03.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
James Vaughan til Leicester á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Leicester City hefur fengið James Vaughan framherja Everton á láni í einn mánuð en möguleiki er á að samningurinn verði síðan framlengdur út tímabilið.
Leicester hafði betur í baráttu við Derby um að fá Vaughan á láni en þessi 21 árs gamli leikmaður var í láni hjá Derby fyrr á leiktíðinni.
Vaughan hefur á ferli sínum leikið 57 leiki með Everton og skorað í þeim níu mörk.
Hann mun núna leysa hinn meidda Matty Fryatt af hólmi hjá Leicester en liðið er í fimmta sæti í Championship deildinni og gæti farið í umspil um úrvalsdeildarsæti.

Heimild: BBC