13.03.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Einar Bjarni til Gróttu á láni (Staðfest)

Mynd: Per Wie/Brann.no

Mynd: Per Wie/Brann.no
Grótta hefur fengið miðjumanninn Einar Bjarna Ómarsson á láni frá KR.
Einar Bjarni, sem er 19 ára gamall, var í stóru hlutverki hjá 2. flokki KR þegar að liðið varð Íslandsmeistari í fyrra.
Einar Bjarni hóf feril sinn hjá Gróttu og lék tvo meistaraflokksleiki árið 2006 áður en að hann skipti yfir í KR.
Í vetur hefur Einar Bjarni tvívegis farið til Noregs á reynslu, fyrst til Brann og síðan til Flöy.
Einar Bjarni er kominn með leikheimild með Gróttu og verður því með liðinu gegn ÍR í Lengjubikarnum annað kvöld.