Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var greindur með kórónaveiruna og er ánægður með ákvörðun ensku úrvalsdeildarinnar um að fresta deildartímabilinu til að forðast frekari smit.
Smit hafa gert vart við sig í enska og ítalska boltanum og hvetur Arteta fólk til að forðast að bera veiruna lengra með því að fylgja fyrirmælum yfirvalda.
„Ég þakka stuðninginn. Mér líður betur nú þegar. Við erum öll að glíma við risastóra og fordæmalausa áskorun," skrifaði Arteta á Twitter.
„Heilsa fólks er það sem skiptir máli núna. Við verðum að vernda hvort annað með því að fylgja fyrirmælum, við munum komast í gegnum þetta saman.
„Ég vil hrósa ensku úrvalsdeildinni fyrir að taka rétta ákvörðun."
Athugasemdir