13.04.12 - 15:10
Magnús Már Einarsson
Björn Pálsson í Víking Ólafsvík á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ólafsvík hefur fengið miðjumanninn Björn Pálsson á láni frá Stjörnunni.
Björn var á láni hjá Víkingi síðari hlutann á síðasta tímabili en þá skoraði hann eitt mark í sjö leikjum í fyrstu deildinni.
Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur leikið með Stjörnunni frá því árið 2008 en lék áður með Sindra.
Ólafsvíkingar eru í leit að frekari liðsstyrk þessa dagana en meðal annars er félagið að skoða hvort það muni semja við franska varnarmanninn Floren Decamps.
Decamps var á reynslu hjá Ólafsvíkingum í æfingaferð liðsins á Spáni fyrr í mánuðinum.