Það styttist í endurkomu norska hafsentsins Erik Tobias Sandberg. Hann hefur verið frá í átta mánuði vegna taugavanda í annarri hendinni.
Hann missti máttinn í annarri höndinni og spilaði ekki síðustu tvo mánuði síðasta tímabils. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, sagði í viðtali eftir jafntefli liðsins gegn Fram í gær að það væru þrjár til fjórar vikur í Norðmanninn.
Hann missti máttinn í annarri höndinni og spilaði ekki síðustu tvo mánuði síðasta tímabils. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, sagði í viðtali eftir jafntefli liðsins gegn Fram í gær að það væru þrjár til fjórar vikur í Norðmanninn.
„Erik er búinn að ná sér af þessum meiðslum sem ollu því að hann var frá í átta mánuði. Eins og gerist oft þegar menn eru að koma til baka eftir svona löng meiðsli þá koma önnur meiðsli. Við vonumst til þess að það séu þrjár til fjórar vikur í hann.“
„Það munar mikið um hann. Hann fékk mikla gagnrýni fyrir síðasta tímabil en hann var góður. Þegar menn nenna að skoða það þá var hann einn besti varnarmaður síðasta sumars. Það er slæmt að missa hann og bíðum spennt eftir að fá hann aftur inn á völlinn,“ sagði Lárus.
Sandberg var m.a. settur á lista yfir tíu mestu vonbrigði síðasta tímabils í Kjaftæðinu eftir að hafa heillað tímabilið þar áður.
Stutt í Steinar og Rúnar
Steinar Þorsteinsson og Rúnar Már Sigurjónsson voru sömuleiðis utan hóps gegn Fram í gær en Lárus sagði þá hafa verið að glíma við smávægileg meiðsli.
„Rúnar rétt missir af þessum leik, ég á alveg eins von á honum í næsta leik. Við verðum að sjá hvernig vikan verður,“ sagði Lárus Orri að lokum.


