13.05.09 - 15:49
Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Garðarsson í FH (Staðfest)

Sverrir Garðarsson er kominn aftur í FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn Sverrir Garðarsson er genginn í raðir Íslandsmeistara FH og fær leikheimild með liðinu á morgun. Sverrir kemur til FH frá sænska liðinu Sundsvall en um lánssamning er að ræða.
Hann mun þó ekki leika með liðinu gegn Fram í Pepsi-deildinni á morgun þar sem hann gekkst nýlega undir aðgerð á ökkla og verður frá fram yfir mánaðarmót.
Sverrir lék mjög vel með FH sumarið 2007 og í kjölfarið keypti sænska félagið GIF Sundsvall hann.
Í fyrra lék Sverrir með Sundsvall þegar að liðið féll úr sænsku úrvalsdeildinni en í ár hefur hann verið úti í kuldanum og ekki verið að komast í leikmannahópinn.
Eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með FH sumarið 2004 meiddist Sverrir illa og þau meiðsli héldu honum frá keppni í um það bil tvö ár.
Þessi 24 ára gamli leikmaður kom hins vegar sterkur til baka og varð bikarmeistari með FH 2007 og átti þá frábært tímabil með liðinu áður en hann hélt til Svíþjóðar.