13.05.09 - 17:15
Arnar Daði Arnarsson
Óli Jón Kristinsson í ÍH/HV (Staðfest)

Óli Jón er genginn í raðir ÍH/HV

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Óli Jón er genginn í raðir ÍH/HV

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Varnarmaðurinn Óli Jón Kristinsson hefur skrifað undir samning við 2.deildarlið ÍH/HV. Undanfarin átta ár hefur Óli Jón leikið í vörn Hauka bæði í 1.deildinni og í 2.deildinni en hann hefur leikið yfir 100 meistaraflokksleiki fyrir Hauka.
Eftir tímabilið í fyrra var ljóst að hann myndi ekki halda áfram að spila með Haukum og hefur hann æft með nokkrum liðum hér á landi í vetur til að mynda með liðum í Pepsi-deild karla.
Að lokum ákvað hann að semja við ÍH/HV og leika með þeim í 2.deildinni í sumar en þetta er gríðarlega mikill liðstyrkur fyrir ÍH/HV sem var til að mynda spáð falli í 2.deildinni í sumar af fyrirliðum og þjálfurum liðanna 2.deildarinnar.
Óli Jón fær leikheimild með liðinu á morgun og verður því löglegur í fyrsta leiknum í 2.deildinni þegar ÍH/HV heimsækja Hvatarmenn á Blönduós.