Fotbolti.net
13.06.23 - 15:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Alveg ljóst hvar Alfreð vill spila - „Mikilvægur þáttur í minni ákvörðun"

Auglýsing
Alfreð á landsliðsæfingu.

Alfreð á landsliðsæfingu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason ræddi við Fótbolta.net í dag og var spurður út í komandi landsleik gegn Slóvakíu, tímabilið með Lyngby, björgunina frá falli, meiðslin og ýmislegt annað.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst
Alfreð talaði líka um sína framtíð en samningur hans við Lyngby rennur út í lok mánaðar.

„Lyngby er það lið sem ég mun tala fyrst við og við erum í viðræðum núna. Ég er bjartsýnn á að það komi góðar fréttir á næstu dögum, það þyrfti eitthvað mikið að gerast hjá þeim og mér til að það breytist," sagði Alfreð.

„Mig langar eiginlega að taka eitt almennilegt tímabil í Superligunni, fannst mér sjá smjörþefinn af því og er spenntur fyrir að taka heilt tímabil á fullu í Superligunni."

Breytti það öllu að Lyngby hélt sér uppi?

„Það var mikilvægur þáttur í minni ákvörðun, ætla ekki að neita því. Maður vill spila á sem hæsta leveli og mögulegt er og það er gríðarlegur munur á efstu og næstefstu deild í Danmörku."

„Þess vegna ákváðum við að tala saman eftir tímabilið, það var alltaf planið að vera ekki að klára þetta áður. Þá gat Lyngby planað fyrir efstu deild eða næstefstu deild; núna vita þeir hvað þeir eru að plana fyrir þannig það er auðveldara fyrir alla að taka ákvarðanir."

„Núna erum við komnir á þann stað að við getum farið að tala saman af einhverri alvöru,"
sagði Alfreð.

Hann er 34 ára gamall framherji sem gekk í raðir Lyngby í lok félagaskiptagluggans síðasta haust. Meiðsli settu strik í reikninginn hjá Alfreð á tímabilinu en hann skoraði þrjú mörkg og lagði upp þrjú í þrettán leikjum í vetur.
Marki fagnað með Lyngby.

Marki fagnað með Lyngby.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.