13.08.08 - 13:10
Þórður Már Sigfússon
Jóhannes Harðarson á láni til Fløy (Staðfest)
Íhugar að flytja heim til Íslands í haust

Jóhannes Harðarson

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Miðvallarleikmaðurinn Jóhannes Harðarson hefur skrifað undir lánssamning við norska 2. deildarliðið Fløy sem mun gilda út yfirstandandi keppnistímabil.
Jóhannes, sem er 32 ára gamall, er á mála hjá Start en hefur lítið fengið að spreyta sig á þessari leiktíð.
,,Þetta verður spennandi. Ég mun mæta á mína fyrstu æfingu hjá Fløy í dag,” sagði Jóhannes í samtali við Fædrelandsvennen.
,,Maður vill fá að spila. Mér hefur liðið mjög vel hjá Start en síðastliðin tvö keppnistímabil hafa verið erfið vegna þess að ég hef lítið fengið að spila.”
Jóhannes segir vel koma til greina að skrifa undir fastan samning við Fløy að loknu þessu keppnistímabili en samningur hans við Start rennur út í haust. Einnig ætlar hann að halda þeim möguleika opnum að flytja heim til Íslands.

Heimild: Fædrelandsvennen