Fotbolti.net
13.08.10 - 15:34
Einar Sigurðsson

James Beattie til Rangers (Staðfest)

James Beattie.

James Beattie.

Canon

Mynd: Getty Images

Skosku meistararnir í Rangers hafa fengið James Beattie til liðs við sig frá Stoke.
Tony Pulis, stjóri Stoke, hafði gefið Beattie leyfi til að yfirgefa félagið fyrir komandi tímabil.

Þessi 32 ára gamli framherji ferðaðist til Glasgow á fimmtudaginn til að ræða við Walter Smith, stjóra Rangers, og hafa þeir komist að samkomulagi.

Beattie féll aftar í goggunarröðinni á síðasta tímabili eftir deilur við Pulis. Einnig keypti Stoke Kenwyne Jones, framherja frá Sunderland, á 8 milljónir punda sem gerði ástand hans hjá félaginu ennþá erfiðara fyrir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.