Arturo Vidal, leikmaður Barcelona, segir að sinn gamli liðsfélagi, Robert Lewandowski, sé frábær leikmaður en að Lionel Messi sé frá annari plánetu.
Barcelona og Bayern Munchen mætast í stórleik í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Portúgal á morgun.
Barcelona og Bayern Munchen mætast í stórleik í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Portúgal á morgun.
„Lewandowski er frábær leikmaður. Mjög hættulegur og alvöru markaskorari. Ég spilaði með honum í þrjú ár, ég veit hvernig hann undirbýr sig fyrir leiki," sagði Vidal.
„Það er ómögulegt að bera hann saman við Messi. Messi er frá annari plánetu. Lewandowski er samt besti framherji í heimi ásamt Luis Suarez."
Quique Setién, þjálfari Barcelona, tók undir orð Vidal.
„Lewandowski er frábær leikmaður en hann er ekki í sama gæðaflokki og Messi. Það er gott að við getum fengið að njóta þess að horfa á þennan leikmann sem Messi er."
Athugasemdir