Mallorca 0 - 0 Athletic Bilbao
Athletic Bilbao mistókst að taka efsta sæti deildarinnar af Atletico Madrid er liðið heimsótti nýliða Mallorca fyrr í kvöld.
Staðan var markalaus eftir tíðindalítinn og jafnan fyrri hálfleik en það lifnaði aðeins yfir leiknum í þeim síðari.
Það ríkti mikil dramatík á lokakaflanum og klúðraði Abdon Prats vítaspyrnu fyrir heimamenn í Mallorca á 82. mínútu. Hinn 38 ára gamli Aritz Aduriz steig svo á punktinn á 96. mínútu en brenndi af.
Lokatölur því 0-0 eftir mikla dramatík undir lokin. Athletic er í öðru sæti, með átta stig eftir fjórar umferðir. Mallorca er með fjögur stig.
Athugasemdir