Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 13. september 2022 21:40
Aksentije Milisic
Lautaro hló að orðrómum um eiginkonu hans og Lukaku
Lukaku og Lautaro eru mjög góðir vinir.
Lukaku og Lautaro eru mjög góðir vinir.
Mynd: Getty Images

Lautaro Martínez, sóknarmaður Inter, segir að brotist hafi verið inn á Instagram reikning hans og þá hló hann að þeim sögusögnum að eiginkona hans hafi farið frá honum og beint til Romelu Lukaku.


Þessir furðulegu orðrómar komust í blöðin í Argentínu eftir að Lautaro eyddi Instagram reikningi sínum.

Eftir að aðgangur Lautaro hvarf þá fóru sögusagnirnar um eiginkonu hans og Lukaku að verða háværar en leikmaðurinn tjáði sig í dag og sagði að þetta var meira ruglið.

„Afhverju eruð þið að búa til svona sögur? Ég og konan mín erum glöð saman og það er ekkert sem þarf að útskýra," sagði Argentínumaðurinn.

„Ekki hlusta á þetta kjaftæði. Í gær var brotist inn á Instagram reikning minn og ég þurfti að loka honum. Sem betur fer er ég kominn með hann aftur!"

Lautaro og Lukaku er góðir vinir en sá Argentínski var einn af þeim fyrstu sem frétti að því að Lukaku væri aftur að koma til Inter. Þá eru þeir einnig nágrannar.


Athugasemdir
banner
banner
banner