13.11.08 - 10:35
Hafliði Breiðfjörð
Pétur Georg Markan í Val (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarson

Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarson
Pétur Georg Markan er genginn í raðir Vals og mun skrifa undir samning við félagið í dag. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi.is í dag en eins og hafði komið fram á Fótbolta.net í síðasta mánuði hafði hann hafið viðræður við félagið.
Pétur Georg Markan er 27 ára gamall og hefur leikið með Fjölni undanfarnar fjórar leiktíðir og toppaði á sinni fyrstu leiktíð í Landsbankadeildinni í sumar er hann skoraði 9 mörk í 21 leik í Landsbankadeildinni auk tveggja marka í fjórum bikarleikjum.
Með Fjölni lék hann samtals 84 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim 30 mörk en þangað hafði hann komið fyrir tímabilið 2005 frá BÍ á Ísafirði.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Vals síðan tímabilinu lauk, áðu rhöfðu þeir Haraldur Björnsson, Ian Jeffs og Reynir Leósson gengið í raðir félagsins en Guðmundur Benediktsson er farinn frá félaginu til KR.

Heimild: Vísir.is